BIOEFFECT EGF Day Serum 30 ml.

BIOEFFECT EGF Day Serum er serum sem dregur úr hrukkum og fínum línum og sérstaklega hannað til notkunar á daginn. Dregur úr hinum ýmsu öldrunareinkennum, kemur jafnvægi á rakastig húðar og er tilvalinn grunnur undir farða.

Vörunúmer: 10154429
+
14.490 kr
Vörulýsing

Létt og áhrifaríkt EGF serum sem heldur húðinni vel nærðri í amstri dagsins

BIOEFFECT EGF Day Serum er rakagefandi gelformúla sem er sérstaklega hönnuð til notkunar yfir daginn. Þetta silkimjúka serum er olíulaust og skilur ekki eftir klístrað lag eða filmu á yfirborði húðarinnar. EGF Day Serum dregur úr ásýnd fínna lína, eykur þéttleika og raka og vinnur þannig gegn sjáanlegum öldrunaráhrifum. Lykilhráefnið er EGF prótín úr byggi — endurnærandi og rakabindandi vaxtarþáttur. Upplifðu hámarksárangur með hreinni húðvöru sem inniheldur aðeins 10 náttúrulega virk efni.

  • Eykur og viðheldur raka í húðinni
  • Rannsóknir sýna að varan dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Jafnar áferð og húðlit
  • Silkimjúk áferð sem er fullkominn grunnur undir farða
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Aðeins 10 innihaldsefni
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum
Notkun

Berið 1-2 pumpur á hreina húð í andliti og á hálsi. Gefið húðinni 3-5 mínútur til að draga serumið í sig áður en farði eða sólarvörn eru borin á. 

Innihald

WATER (AQUA), PROPYLENE GLYCOL, GLYCERIN, SORBITOL, CARBOMER, SODIUM HYALURONATE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

 

Tengdar vörur